Skilmálar
Við kaup á vöru er kaupandi að samþykkja alla skilmála hér fyrir neðan.
Fyrirvari
Allar upplýsingar á Jiri.is (birgðastaða, verð o.fl.) eru birtar með fyrirvara um villur.
Jiri Iceland áskilur sér réttinn að hafna pöntunum eða breyta afhendingartíma ef nauðsyn krefur.
Gagnavistun
Jiri Iceland mun geyma öll gögn sem kaupandi hakar í við kaup á vöru/m. Jiri Iceland mun ekki deila þessum gögnum til þriðja aðila í samræmi við persónuverndarlög.
Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Dropp. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vöru frá Dropp. Skilmálar Dropp eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins.
Skilafrestur
Ekki er boðið upp á skil á vörum Jiri Iceland á grundvelli þess að seldar eru orkuduft blöndur ætlaðar til neyslu. Þetta er gert sem varúðarráðstöfun.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn í samræmi við lög um neytendaábyrgð.
Birt verð
Jiri Iceland áskilur sér réttinn á verðbreytingum innan netverslunar án sérstaks fyrirvara við neytendur.
Skattar og gjöld
Öll verð í vefversluninni innihalda virðisaukaskatt og reikningar sömuleiðis.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem kaupandi velur.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Tölvupóstar og fleira þess háttar úr kerfum okkar kunna að nota persónuupplýsingar á borð við búsetu, aldur, netfang eða viðskiptasögu (þessi listi er ekki tæmandi), til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima póstlistans okkar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir Jiri klúbbsins geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun slíkra upplýsinga.
Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Netfang: jiri.iceland@gmail.com